top of page
image_2025-10-04_124037532.png

Lúðrasveit Mosfellsbæjar

Þann 2. mars 2025 var Lúðrasveit Mosfellsbæjar formlega stofnuð

Aðdragandann má rekja til þess þegar gamlir félagar úr Skólahljómsveit Mosfellsbæjar komu reglulega saman á æfingum vorið 2024.

Áratugalöng starfsemi Skólahljómsveitarinnar er það sem bindur félagsskapinn upphaflega saman, en aðgangur að félagsskapnum er þó ekki bundinn við það og eru nú þegar nokkrir félagar sem eiga bakgrunn í öðrum lúðrasveitum eða hafa byrjað tónlistarnám sitt seinna á lífsleiðinni. 

Æfingar

Æfingar eru alla sunnudaga kl. 16:30-18 í kjallara Varmárskóla að Skólabraut 1, Mosfellsbæ.
Þær eru opnar öllum áhugasömum hljóðfæraleikurum.

IMG_7206_edited.jpg
bottom of page